Deluxe single
Einstaklings herberbergi með útsýni
Deluxe Single herbergin eru með 120 cm breið rúm. Stærð herbergjanna er að meðaltali 16,6 m². Sum herbergjanna bjóða upp á einstakt útsýni yfir Faxaflóann og hægt er að óska sérstaklega eftir slíku herbergi. Auka rúm og barnarúm eru því miður ekki í boði fyrir þessi herbergi.
Sjá 360° panorama mynd af deluxe single herbergi hér.
Standard Double/Twin
Rúmgóð & notaleg
Standard Double/Twin herbergin eru að meðaltali 19,5 m² að stærð. Rúmin í þeim eru ýmist í Queen eða King stærð sem hægt er að hafa samsett eða aðskilin. Baðkar er í sumum Standard Double/Twin herbergjum sem hægt er að óska sérstaklega eftir. Möguleiki er að bæta við barnarúmi í herbergin en það kostar aukalega.
Sjá 360° panorama mynd af standard double/twin herbergi hér.
Deluxe Double/Twin
Tilvalinn staður í borginni
Deluxe Double/Twin herbergin eru með annað hvort rúm í Queen eða King stærð og hægt er að hafa þau samsett eða aðskilin. Herbergin eru að meðaltali 20,8 m² að stærð. Það er sturta í öllum herbergjum en hægt er að óska sérstaklega eftir herbergi með baðkari. Möguleiki er að bæta við auka rúmi eða barnarúmi í herbergin en það kostar aukalega.
Sjá 360° panorama mynd af deluxe double/twin herbergi hér.
Sea view double/twin
Útsýni yfir höfnina
Sea View Double/Twin herbergin hafa einstakt útsýni í átt að Hörpu tónlistarhúsi og Faxaflóa. Herbergin eru ýmist með rúm í Queen eða King stærð sem hægt er að hafa samsett eða aðskilin. Meðalstærð herbergjanna er 20,2 m². Möguleiki er að bæta við auka rúmi eða barnarúmi í herbergin en það kostar aukalega.
Sjá 360° panorama mynd af sea view double/twin herbergi hér.
Sea view deluxe
Með stórkostlegt útsýni
Sea View Deluxe King herbergin eru þau herbergi sem búa yfir mestu þægindunum á hótelinu. Herbergin eru staðsett á horni hótelsins og frá gluggum sem ná frá gólfi upp í loft er einstakt útsýni yfir Hörpu tónlistarhús og Faxaflóann. Meðalstærð herbergjanna er 23,6 m². Rúmin eru í King size og baðkar er á öllum herbergjunum. Að auki eru baðsloppar, inniskór, hreinlætisvörur og Nespresso kaffivél. Aðgangur í spa fylgir með og hægt er að bæta við barnarúmi gegn auka gjaldi.
Sjá 360° panorama mynd af sea view deluxe herbergi hér.